Sigling frá Neskaupstað til Mjóafjarðar*
Siglt er sem leið liggur frá Neskaupstað út Norðfjörð framhjá Uxavogstanga, vitanum,
Páskahelli og undir Norðfjarðarnípu, hæsta standbergi í sjó fram á Íslandi 819 metrar,
framhjá Nípustapanum og lagst að bryggju við Brekku í Mjóafirði. Í góðu skyggni er
ægifagurt útsýni á þessari siglingaleið til dæmis út að Dalatanga austasta byggða bóli á
Íslandi.
- Tímabil: 1. maí til 15. september.
- Ferðatími: Föstudaga og mánudaga kl. 10:30 og 17:00.
- Duration: 40 mín.
- Verð:: Fullorðnir kr. 1.800,- önnur leiðin / 12-15 ára: 50% afsl. / 0-11 ára: Frítt.
*Í tengslum við rútu frá Egilsstöðum.