Fjarðaferðir

Skoðunarferð

Siglt er þvert yfir Norðfjörð, í eyðifjörðinn Hellisfjörð og fyrir minni Viðfjarðar. Tignarleg fuglabjörg skoðuð, farið inná fallegar víkur og voga að ógleymdum hinum ægifögru Rauðubjörgum. Siglt er út fyrir Norðfjarðarhorn, þar sem Atlantshafið blasir við, Gerpirinn austasti oddi landsins, Dalatangi austasta byggða ból á landinu og Glettingur. Siglt er undir Norðfjarðarnípu, hæsta standberg úr sjó á Íslandi, 819 metrar.
  • Tímabil: Allt árið.
  • Ferðatími: 2 tímar.
  • Verð:: Fullorðnir: 4.900 kr. / 12 -15 ára: 50% afsl. / 0-11 ára: Frítt.
  • Innifalið: er ferðin með leiðsögn.
  • Lágmarksfjöldi: 15 manns.
Veitingasala<.b> um borð.