Svæðið okkar
Neskaupstaður er austasti bær á Íslandi. Íbúar eru rúmlega 1500. Mikil
skógrækt er fyrir ofan bæinn og þar eru athyglisverðir snjóflóðavarnargarðar.
Margar skemmtilegar gönguleiðir eru auk þess í nágrenni bæjarins. Á
Neskaupstað er góð sundlaug og nokkrir veitingastaðir auk verslana. Þar eru
einnig söfn sem vert er að skoða; náttúrugripasafn, sjóminjasafn og safn
Tryggva Ólafssonar. Innúr Norðfjarðarflóa ganga fjórir firðir; Mjóifjörður,
Norðfjörður, Hellisfjörður og Viðfjörður. Landslagið er stórbrotið og sigling á
Norðfjarðarflóa er einstök upplifun. Þar gefur að líta fjölbreytt fuglalíf,
smáhveli og einstakt landslag. Norðfjarðarhornið og Nípan kallast á og í
fjarska sér yfir til Dalatanga. Einnig er skemmtilegt að renna fyrir fisk á Norðfjarðarflóa.
Allar brottfarir eru frá bryggjunni neðan við Egilsbúð.
Mjóifjörður er fullur af friðsæld og fegurð. Góður staður til að njóta
náttúrunnar við lækjarnið og sjávarilm í faðmi fjallanna. Veitingasala yfir
sumartímann; nýr mjófirskur kræklingur og súpa með heimabökuðu brauði,
kaffi, kakó og nýbakaðar vöfflur með sultu og rjóma. Bændagisting bæði í
Sólbrekku og tveimur heilsárs bústöðum, opið allt árið. Upplifið ekta
óvissuferð í Mjóafirði. Nánari uppl. veitir Jóhanna í s. 4760007 eða 8949014.
Tilvalið er að sigla með fyrri ferðinni til Mjóafjarðar á föstudegi eða mánudegi og
dvelja þar yfir daginn og sigla svo með seinni ferðinni til baka eða dvelja í
Mjóafirði frá föstudegi til mánudags og upplifa einstaka nátturu og friðsæld,
fara í gönguferðir og njóta margvíslegrar þjónustu sem í boði er.